Ég hef leitað mikið í íslenska náttúru til þess að finna efni til að vinna úr og hef hannað skemmtileg blómalistaverk unnin úr íslenskri náttúru sem má finna í verslun minni. Vörumerkið hefur yfirskriftina Auður í náttúru Íslands, en þar er verið að vitna í auðinn sem við eigum í okkar stórbrotnu náttúru. Með opnun blómaverslunarinnar, Auður Blómabúð-Blómaverkstæði vil ég koma með innblástur í blómaflóruna með því að bjóða viðskiptavinum upp á fersk afskorinn blóm og pottaplöntur sem eru öll sérvalin, fallega gjafavöru, listmuni og vandað handbragð ásamt góðri og persónulegri þjónustu, hvert sem tilefnið er.